Umsóknir um styrk vegna jarðræktar (korn-, gras og grænfóðurrækt)
Umsóknir eiga að berast til viðkomandi búnaðarsambands/leiðbeiningamiðstöðvar, annað hvort með umsóknareyðublaði eða með vefumsókn sem hvort tveggja er að finna á www.bondi.is.
Vert er að benda á að lágmarksúttekt á samanlögðu ræktuðu landi er 2 ha og til að standast úttekt á ræktun þarf umsækjandi að leggja fram viðurkennt túnakort. Umsækjandi þarf að stunda búnaðargjaldsskylda framleiðslu. Nánari reglur og upplýsingar um þróunar- og jarðabótaverkefni má nálgast á heimasíðu Bændasamtakanna, bondi.is með því að smella hér