Þróunarsjóður BHS – úthlutun 2008

Stjórn BHS hefur nú lokið umfjöllun sinni um umsóknir í Þróunarsjóð BHS fyrir árið 2008.

Eins og áður hefur komið fram var ákveðið að styrkja á þessu ári námsfólk af okkar svæði sem er í landbúnaðartengdu námi.

Eftirtaldir nemar fengu 50 þús kr styrk hver:

Sigríður Ólafsdóttir, Víðidalstungu – er á fyrsta ári í framhaldsnámi (meistaranámi) í búvísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands – hefur numið í Noregi að undanförnu

Sonja Líndal, Lækjamóti – er á fyrsta ári í dýralæknanámi í Kaupmannahöfn

Eyrún Ösp Skúladóttir, Tannstaðabakka – er á öðru ári í búvísindanámi við LBHÍ

Eydís Ósk Indriðadóttir, Grafarkoti – er á öðru ári í háskólanámi í hestafræðum sem er námslína sem er kennd að hluta til við LBHÍ og að hluta við Háskólann á Hólum

Einar Reynisson, Syðri Völlum – er á öðru ári í háskólanámi í hestafræðum sem er námslína sem er kennd að hluta til við LBHÍ og að hluta við Háskólann á Hólum

Gunnar Reynisson, Syðri Völlum – er á öðru ári í háskólanámi í hestafræðum sem er námslína sem er kennd að hluta til við LBHÍ og að hluta við Háskólann á Hólum

Stella Guðrún Ellertsdóttir, Sauðá – er á fyrsta ári í háskólanámi í hestafræðum sem er námslína sem er kennd að hluta til við LBHÍ og að hluta við Háskólann á Hólum

Ingveldur Ása Konráðsdóttir, Böðvarshólum – er á öðru ári í Búfræðinámi við LBHÍ

Sigríður Ása Guðmundsdóttir, Hvammstanga – er á öðru ári í Búfræðinámi við LBHÍ

Þorkatla Inga Karlsdóttir, Þorfinnsstöðum – er á fyrsta ári í Búfræðinámi við LBHÍ

Við óskum þessum nemum góðs gengis í námi sínu og vonum að styrkurinn nýtist þeim vel. GR

Posted in BHS