Í ár verður tekið sæði frá Sæðingastöð Vesturlands sem fyrr. Einnig verður í boði sæði af Suðurlandi dagana 1. og 2. desember. Verð á sæðisskammti í ár er 565 kr. + vsk.
Sæði af Vesturlandi verður í boði mán-mið. 3 vikur í röð eins og hefð er orðin fyrir. Hægt verður hægt að nálgast sæðið í Staðarskála, við Hvammstangaafleggjara og á Blönduósi eins og verið hefur. Þar að auki eru frjálsir dagar á Vesturlandsstöðinni 30. Nóv, 1. og 2. des en þá geta menn pantað sæði ef þeir hafa sjálfir far fyrir það, því það verður ekki keyrt út frá stöðinni á sama hátt og hina dagana.
Aðalsæðingadagar eru því sem hér segir:
fim-fös. 1.-2. des – Suðurland
mán-mið. 5.-6. des – Vesturland
mán-mið. 12.-14. des – Vesturland
mán-mið. 19.-21. des – Vesturland
Árneshreppur er sér á báti með sína sæðingadaga fyrir ferskt sæði. Gjögurflug er mánudaga og fimmtudaga og munu Árneshreppingar geta nýtt sér þá daga í desember. Eins er opinn möguleiki að fá sæði aðra daga, ef ferð fellur. Gunnar Dalkvist í Bæ sér um að halda utan um þær pantanir og allt í kringum það.
Pantanir berist á skrifstofu BHS 451-2602, netfang: rhs@bondi.is. Panta þarf sæði fyrir kl. 14:00 næsta virka dag á undan sæðingadegi. Þannig þarf að panta á föstudegi, fyrir sæðingu á mánudegi.
Allar pantanir á sæði fara í gegnum BHS. Bændur sem hafa farið á námskeið í sauðfjársæðingum, geta sætt sjálfir, en þeir sem ekki hafa sótt slíkt námskeið, verða sjálfir að semja við einhvern um að sæða hjá sér.
Þegar pantað er sæði fyrir ósamstilltar ær er mikilvægt að láta okkur hjá BHS vita í tíma ef ekki finnast blæsma ær, svo hægt sé að nota sæðið á öðrum bæjum. Sama gildir ef menn vilja fá sæði í fleiri ær en pantað er fyrir, þá þarf að láta okkur vita um morguninn og við munum reyna að ráðstafa því sæði sem kemur aukalega til þeirra.
Dýralæknar sjá um að selja svampa.