Skipulag sauðfjársæðinga

Í ár verður tekið sæði frá Sæðingastöð Vesturlands. Alls er boðið upp á 10 daga fyrir allt svæðið auk þess sem 12. desember er aukalega í boði fyrir Strandamenn, því þá er rúta á Hólmavík. Strandamenn geta að sjálfsögðu einnig sætt hina dagana og verður þá reynt að selflytja sæðið vestur. Verð á sæðisskammti í ár er 450 kr. + vsk.

Sætt verður mán-mið. þrjár vikur í röð og verður hægt að nálgast sæðið í Staðarskála, við Hvammstangaafleggjara og á Blönduósi.

Sæðingadagar
1.des
2.des
3.des
8.des
9.des
10.des
12. des
15.des
16.des
17.des

Að auki stendur nú bændum til boða að fá sæði þann 19. des (þá er einnig rúta á Hólmavík). Það getur t.d. hentað bændum sem eru að sæða fyrstu dagana í desember og vilja sæða ærnar aftur sem ganga upp.

Pantanir berist á skrifstofu BHS 451-2602, netfang: rhs@bondi.is. Panta þarf sæði fyrir kl. 14:00 næsta virka dag á undan sæðingadegi. Þannig þarf að panta á föstudegi, fyrir sæðingu á mánudegi.

Allar pantanir á sæði fara í gegnum BHS. Bændur sem hafa farið á námskeið í sauðfjársæðingum, geta sætt sjálfir, en þeir sem ekki hafa sótt slíkt námskeið, verða sjálfir að semja við einhvern um að sæða hjá sér.

Þegar pantað er sæði fyrir ósamstilltar ær er mikilvægt að láta okkur hjá BHS vita í tíma ef ekki finnast blæsma ær, svo hægt sé að nota sæðið á öðrum bæjum. Sama gildir ef menn vilja fá sæði í fleiri ær en pantað er fyrir, þá þarf að láta okkur vita um morguninn og við munum reyna að ráðstafa því sæði sem kemur aukalega til þeirra.

Dýralæknar sjá um að selja svampa og hafa þeir sem sótt hafa sæðinganámskeið leyfi til að svampa sjálfir. KÓE

Posted in BHS