Námskeið fyrir alla sauðfjárbændur og þá sem hafa áhuga á að starfa eða starfa við sauðfjársæðingar.
Fjallað er örstutt um sögu sauðfjársæðinga. Æxlunarfærum sauðkinda er lýst og greint er frá helstu atriðum varðandi æxlunarlíffræði þeirra. Fjallað er um sæðingar, hvernig best er að standa að þeim, hvenær rétti sæðingatíminn er og í hverju samstilling gangmála er fólgin. Kennd er meðferð sæðis og verklag við sæðingar er kennt í fjárhúsi. Einnig er rætt um smitvarnir. Ætlast er til þess að nemendur geti sætt ær og sagt til um það hvernig bestum árangri verður náð.
Umsjón og kennsla: Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir.
Tími:
v Fim. 3. desmeber Kl 13:00-18:00 (6,5 kennslustund), á Hesti í Borgarfirði
v mið. 2. desember kl. 13:00-18:00 (6,5 kennslustund), á Stóra-Ármóti
v Fim. 26. nóvember kl. 13:00-18:00 (6,5 kennslustund), á Laufási
Verð: 9.200 kr.
Skráningar: LbhÍ – á endurmenntun@lbhi.is (nafn, kennitala, heimili og sími) eða í síma 433 5000.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 1800 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590. Kvittun með skýringu send á endurmenntun@lbhi.is
Námskeiðið er stykhæft úr Starfsmenntasjóði bænda (sjá www.bondi.is ) . Hver einstaklingur á lögbýli á rétt á því að sækja um stuðning frá sjóðnum – hámarksupphæð á ári er um 22.000 kr.