Héraðssýning kynbótahrossa verður á Blönduósi 4. og 5. júní. Tekið er á móti skráningum hjá Búnaðarsambandinu á Blönduósi í síma 451 2602 / 895 4365 eða á netfangið rhs@bondi.is
Síðasti skráningardagur er föstudagur 29. maí
Sýningargjald er 13.500 kr en 9.000 kr ef bara er annaðhvort byggingadómur eða reiðdómur og þarf að greiðast samhliða skráningu inn á reikning 307-26-2650, kt. 471101-2650. Senda skal kvittun á netfangið rhs@bondi.is með upplýsingum um fyrir hvaða hross er verið að greiða.
Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni og spattmyndir. Nánari upplýsingar um tímasetningar verða á heimsíðu búnaðarsambandsins (www.rhs.is)
Búnaðarsambandið og Samtök hrossabænda í Húnaþingi