Kynbótasýning á Blönduósi 14-15 ágúst 2008

Sumarsýning kynbótahrossa verður á Blönduósi 14-15 ágúst 2008. Ef þörf verður á verður miðvikudegi 13 ágúst bætt við.

Tekið er á móti skráningum hjá Búnaðarsambandinu í síma 451-2602 /895-4365 eða á netfang rhs@bondi.is , sem er enn betra.

Lokadagur skráninga er föstudagur 8. ágúst.

Sýningargjald er 12.000 kr á hross ( 8.000 kr ef bara byggingadómur) og þarf að greiðast samhliða skráningu inn á reikning 307-26-2650 á kt: 471101-2650 og senda kvittun á netfangið rhs@bondi.is með upplýsingum um fyrir hvaða hross er verið að greiða.

Munið að kynna ykkur reglur um einstaklingsmerkingar, járningar, blóðsýni, dna-sýni og spattmyndir.
Nánari upplýsingar verða á heimasíðunni okkar www.rhs.is

Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda

Posted in BHS