Kúasæðingar

ATH. hringja þarf fyrir kl. 10.00 að morgni, ef sæða á sama dag.

Talhólfsnúmer til að senda inn pantanir fyrir kúasæðingar:

– A-Hún 871-3036

– V-Hún og Strandir 871-1739

Minnum á eftirfarandi atriði sem þarf að hafa í huga þegar frjótæknir er pantaður:

  • Þegar kvígur eru sæddar í stíu, er nauðsynlegt að hafa aðstoðarmann.
  • Merkja kýr og kvígur og skrifið númer þeirra sem á að sæða, skiljið eftir símanúmer ef þið eruð ekki við.
  • Kýr og kvígur, sem á að sæða skulu vera bundnar eða í góðu aðhaldi.
  • Vinsamlegast takið fram við pöntun, ef kýr eru samstilltar, svo frjótæknir eigi örugglega til sama naut næsta dag.
  • Athugið að fjósin ykkar eru einnig vinnustaður frjótækna.
  • Góð aðstaða – Betri árangur