Kynningarfundi á hrútakosti sæðingastöðvanna sem vera átti á Blönduósi á morgun föstudag er aflýst vegna slæmrar veðurspár.
Þeir sem hugðust mæta á þann fund geta farið í Ásbyrgi á mánudagskvöld kl. 20:00 eða í Tjarnarbæ (við Svaðastaðahöllina) kl. 14 á sunnudaginn.
Hrútaskráin komst ekki norður í dag en verður væntanlega komin eftir helgi.