Heimsmeistaramót í hrútadómum og Þuklaraball

Það verður sannkölluð stórhátíð í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum laugardaginn 20. ágúst kl. 14:00. Þá verður haldið níunda Íslandsmeistaramótið í Hrútadómum – venjulega kallað hrútaþukl – en þessi íþróttagrein hefur smám saman náð almennri hylli landans síðan Sauðfjársetrið hóf að halda mótið árið 2003. Sérstaða mótsins er orðin það mikil að sennilega er óhætt að fullyrða að um heimsmeistaramót sé að ræða. Um kvöldið verður síðan haldið Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík með hinni goðsagnakenndu hljómsveit Upplyftingu, en hún hefur ekki haldið dansleik á Ströndum í fjöldamörg ár. Nóg verður um að vera; ókeypis verður inn á safnið og sýningu þess, líf og fjör fyrir utan safnið og skemmtiferðir verða farnar í dráttarvélavagni. Reyndir og óreyndir þuklarar hvaðanæva að af landinu eru boðnir innilega velkomnir á þessa miklu hátíð.

Gestir þurfa ekki að hafa áhyggjur af hungri, en í hádeginu verður að sjálfsögðu kjötsúpa á boðstólum, risastórt og veglegt kaffihlaðborð verður í boði í Kaffi Kind í Sævangi meðan á keppninni stendur og um kvöldið verður síðan hægt að kíkja á veglegt matarhlaðborð á Café Riis á Hólmavík.

Hrútadómarnir sjálfir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur og æðsti sauðfjárspekúlant Íslands fer fyrir dómnefnd  sem metur fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu fara hins vegar eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja. Afar veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum – t.d. hafa þrír efstu í vana flokknum undanfarin ár fengið meðal annars nokkra skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands!

+++

Nánari upplýsingar fást hjá:
Matthías Lýðsson, stórbóndi og sitjandi forseti Sauðfjársetursins
Sími: 845-8393

Arnar S. Jónsson, yfirþuklari
Símar: 661-2009

Netfang: saudfjarsetur@strandir.is
Vefur: www.strandir.is/saudfjarsetur

Posted in BHS