Fjósbygginganámskeið 22. janúar

Endurmenntunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands ætlar, í samvinnu við Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda og Búnaðarsamband Skagafjarðar, að bjóða upp á fjósbygginganámskeið þann 22. janúar næstkomandi. Um er að ræða eins dags námskeið, fyrir kúabændur, um nýjungar varðandi aðbúnað nautgripa og hönnun á legubásafjósum, eftirlitskerfi, tæknilausnir og viðhald legubásafjósa. Óbeint framhald Fjósbyggingarnámskeiðanna sem haldin voru 1998-2000. Hámarksfjöldi um 18 manns.

Á námskeiðinu verður farið yfir nýjungar á sviði húsbygginga, innréttinga og fóðrunartækni í legubásafjósum. Þá verður farið yfir ýmsa þætti varðandi hönnun mjaltaaðstöðu og -tækni, bæði fyrir mjaltagryfjur og mjaltaþjóna. Auk þess verður eftirlit og eftirlitskerfi rætt sérstaklega en ýmsar áhugaverðar nýjungar eru nú aðgengilegar fyrir legubásafjós. Sérstök áhersla verður jafnframt lögð á hönnun aðstöðu fyrir geldneyti. Þá verður varið drjúgum hluta námskeiðsins í það að fara yfir reynslu hérlendra bænda af nýbyggðum fjósum og hvað þeir telja að skuli varast og hvað hafi tekist sérlega vel. Þetta er námskeið sem á erindi til allra kúabænda sem hafa staðið í framkvæmdum, eru að standa í framkvæmdum eða eru að huga að framkvæmdum.

Umsjón og kennsla: Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri búrekstrar við LbhÍ.

Tími: þri. 22. janúar Kl. 09:00 – 17:30 (9 kennslustundir) í Sjálfstæðissalnum, Húnabraut 13, á Blönduósi (með fyrirvara um breytingar. Tekið verður tillit til hvaðan flestir þátttakendurnir koma).

Verð: 12.500.-

Skráningafrestur til 16. janúar

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2200 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590.

Skráningar á endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og hvaða námskeið) eða í síma 433 5033/ 433 5000.

Posted in BHS