Niðurstöður afkvæmarannsókna sem framkvæmdar voru síðastliðið haust eru nú orðnar aðgengilegar á vefnum. Umfang þeirra hefur aldrei verið meira en nú. Uppgjör var gert fyrir 87 bú en þau voru 76 talsins haustið 2007. Fjöldi afkvæmahópa innan búa var líka yfirleitt meiri núna en síðustu haust. Víða á bæjum sitja synir sæðingastöðvahrúta á toppnum. Þar eru synir Kveiks, Lóms og Mána mest áberandi. Eins sést víða að hrútar sem keyptir hafa verið til kynbóta hafa reynst bæta kjötgæði til muna. Þar er m.a. hægt að benda á syni Gullmola frá Broddanesi og eins syni Boga frá Heydalsá en hann kom inn á sæðingastöð síðasta haust. Það er því ánægjulegt að sjá að sá síaukni áhugi bænda til að kynbæta sitt fé er að skila ótvíræðum árangri. Mjög fróðlegt er að skoða þessar niðurstöður og bændur sem t.d. ætla sér að kaupa lambhrúta næsta haust geta hér séð út efnilega hrútsfeður.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá yfirlit yfir rannsóknirnar eftir sýslum. KÓE
Afkvæmarannsóknir 2008 í A-Hún
Afkvæmarannsóknir 2008 í V-Hún
Afkvæmarannsóknir 2008 í Strandasýslu