Áburðaráætlanir

Nú eru allir áburðarframleiðendur búnir að gefa út verð og flestir veita afslátt ef pantað er fyrir miðjan marsmánuð. Það er því ekki til setunnar boðið ef menn vilja láta vinna áburðaráætlanir fyrir vorið. Í áburðaráætlun er tekið mið af áburðarþörf, nýtingu búfjáráburðar og verði. Við mat á áburðarþörfum koma hey- og jarðvegsefna­greiningar í góðar þarfir sem og ræktunarsaga og uppskera fyrri ára.

Allar áburðaráætlanir okkar eru unnar í www.jörð.is og þar eiga að birtast túnkortaspildur sem teiknaðar hafa verið inn í loftmyndagrunn Loftmynda ehf. Það er því afar þægilegt ef til er slíkt túnkort á bænum sem unnið er fyrir en alls ekki nauðsynlegt. Ef ekki er til slíkt túnkort eru tveir möguleikar, annars vegar að láta teikna slíkt eða þá stofnskrá spildurnar án loftmyndatengingar inn í jörð.is.

Þeir sem tóku að lágmarki 3 heysýni í sumar og eru með túnkort aðgengilegt á jörð.is fá í ár áburðaráætlanir endurgjaldslaust. Annars eru áburðaráætlanir unnar á tímagjaldi skv. gjaldskrá BHS og er það 3.400 kr/klst. Hér inni á heimasíðunni okkar, undir eyðublöð má nálgast eyðublað sem  Excel-skjal eða sem pdf-skjal sem hægt er að færa inn spildur, búfjáráburð, fyrirhugaða grænfóður- og/eða kornræktun o.s.frv. en það flýtir fyrir gerð áætlunar ef slíkt liggur fyrir við upphaf hennar. Þeir sem eru byrjaðir að nota jörð.is geta skráð sömu upplýsingar þar inn.

Fyrir þá sem vinna sínar áætlanir sjálfir viljum við benda á að hér á heimasíðunni okkar erum við með skjal að láni frá Ingvari Björnssyni ráðunauti á Búgarði, sem sýnir magn fosfórs og kalí sem fylgir með hverjum 100 kg af köfnunarefni í mismunandi blöndum áburðarsalanna og verð miðað við það.

Posted in BHS